Það loft sem við öndum að okkur skiptir máli og mun hafa áhrif á heilsu okkur um aldur og ævi. Við myndum aldrei láta bjóða okkur skítugt vatn á vinnustaðnum, af hverju þá óhreint loft?“ segir Tómas Hafliðason, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Íshússins. MYND/ANTON BRINK - Fréttablaðið
Það loft sem við öndum að okkur skiptir máli og mun hafa áhrif á heilsu okkur um aldur og ævi. Við myndum aldrei láta bjóða okkur skítugt vatn á vinnustaðnum, af hverju þá óhreint loft?“ segir
Tómas Hafliðason, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Íshússins. MYND/ANTON BRINK – Fréttablaðið
Fréttablaðið fjallaði um varmaendurvinnslu rörið í blaðinu hjá sér í dag, en varmaendurvinnslurörið er snjöll lausn fyrir lofrtæstingu í herbergi eða lítil rými t.d. airbnb herbergi. Rörið er einföld lausn, það þarf bara að gera úttak og tengja það við rafmang og það er komin lausn sem dregur úr raka og bætir alla innivist og loftið inni.

Líklega myndu fæstir láta bjóða sér að drekka drulluskítugt vatn en þegar kemur að lofti virðist
allt annað vera uppi á teningnum. Kannski vegna þess að skíturinn er ekki jafn sýnilegur í lofti. Samt sem áður þá hefur það loft sem við
öndum að okkur bein og varanleg áhrif á heilsu okkar,“ segir Tómas Hafliðason, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Íshússins.
Íshúsið er með eitt mesta úrval landsins af viftum og loftræstingum og hefur yfir 30 ára reynslu í þessum málum. Tómas segir hreint loft inni
á vinnustöðum og inni á heimilum fólks grundvallaratriði sem eigi að vera gefið en sé það mjög oft ekki.

Oft sé það í höndum starfsmanna að krefjast úrbóta. „Við eigum langt í land með að átta okkur á þeim áhrifum sem myglusveppur og önnur uppleyst efni í loftinu geta haft á heilsuna. Þrátt fyrir mikla vitundurvakningu, þá vantar að gripið sé til aðgerða. Það er ekki nóg að ræða bara um
hlutina, það þarf að framkvæma. Það loft sem við öndum að okkur skiptir máli og mun hafa áhrif á heilsu okkur um aldur og ævi. Við
myndum aldrei láta bjóða okkur skítugt vatn á vinnustaðnum, af hverju þá óhreint loft? Mygla er bara ein lítil birtingarmynd af óheilbrigðu
lofti, fyrst og fremst vegna þess að við sjáum hana. Hvað með allt það sem við sjáum ekki? Skortur á viðhaldi eins og það sem
við höfum séð í opinberum byggingum hefur mikil áhrif á loftgæði í þeim og það er umhugsunarefni að við bjóðum fólki upp á þessar
aðstæður. Það er löngu kominn tími á aðgerðir og þær þurfa ekki að vera dýrar, sé gripið nógu snemma inn í aðstæður.“

Loftræsting bjargar
Tómas segir hægt að koma í veg fyrir gríðarlega mikil fjárútlát vegna raka og myglu með því að setja upp jafnvel bara einfalt loftræstikerfi,
bæði á heimilum og á vinnustöðum. Það þurfi ekki að vera flókin aðgerð. „Málið er að í þeim tilfellum þar sem myglusveppur er þegar
kominn fram erum við alltaf að tala um margfalt dýrari aðgerðir heldur en að vera einfaldlega með hlutina í lagi frá upphafi. Ef það
eru ekki utanaðkomandi lekar sem þarf að eiga við þá er einfaldlega góð loftræsting númer eitt, tvö og þrjú sem skiptir máli. Þetta virðist
verða sérstaklega mikið vandamál í húsnæði byggðu eftir 2000 og í húsnæði sem hefur verið tekið í notkun fyrir Airbnb. Við fáum
daglega inn fólk sem er að koma til okkar of seint,“ segir Tómas.

Einfalt rör flytur ferskt loft „Fólki finnst oft að það hljóti að vera flókin aðgerð að setja upp loftræstikerfi og miklar það fyrir sér.Loftræstikerfi sé eitthvað stórt og og fyrirferðarmikið en það þarf alls ekki að vera – þótt oft sé það nauðsynlegt. Einfaldasta loftræstikerfið sem við bjóðum upp á í Íshúsinu er í daglegu tali bara kallað Rörið, enda er það bara rör. Það eina sem þarf að gera er að koma því fyrir í útvegg, tengja það við rafmagn og allt er klárt. Kerfið dælir fersku lofti inn í rýmið í 60 sekúndur og dælir svo óhreina loftinu út í aðrar 60 sekúndur, með því að nota varmann þá endurnýtir kerfið allt að 90% af varmanum. Viðkomandi fær ferskt loft inn án þess að tapa miklum hita. Hægt er að setja upp eitt eða mörg rör, eftir stærð og því sem við á. Með þessu er dregið úr raka og uppleyst eiturefni eru fjarlægð.“

Fjárfesting sem borgar til baka
„Til langs tíma er loftræsting fjárfesting sem borgar sig alltaf margfalt til baka, ekki bara í krónum og aurum, heldur líka heilsufarslega
séð. Það er fljótt að hafa áhrif enda dveljum við 80% tímans innandyra,“ segir Tómas. „Rörið hentar best í minni rými en við eigum lausnir í öllum stærðum. Hvort sem þú þarft að þurrka, hreinsa, blása eða bæta loftið þá eigum við lausn. Við erum eiginlega með allt sem þú þarft á einum stað,“ segir Tómas.

Tæki og tól fyrir verktaka
Hafi hins vegar mygla þegar myndast býður Íshúsið tæki og tól til aðgerða fyrir verktaka. „Þá skiptir miklu máli að ganga strax til aðgerða og vera með réttu tækin ef komin er mygla. Verktakar verða að gæta sín á að dreifa myglunni ekki um allt hús og því eigum við til fyrir þá undirþrýstingsblásara og HEPA síur og annað, svo það sé hægt að framkvæma hreinsun án þess að valda meira tjóni og dreifa óþverranum,“ segir Tómas.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *