Vifta sem er hönnuð fyrir mengað, rakt, fitugt eða heitt loft (upp að 100°C) í kerfi þar sem er mikil mótstaða.
- Útsog úr iðnaðar eldhúsum
- Útsog þar sem er verið að logsjóða eða rafsjóða
- Bakarí loftræsting
Viftan er gerð úr galvaniseruðu stáli og kemur með 50 mm steinull. Hægt er að opna viftuna til að hreinsa hana á auðveldan máta. Lokið kemur með gúmmí þéttingu til að koma í veg fyrir loftleka.