Snjallvifta – Reton – R7

Kíktu í vefverslun

SKU: fresh-r7 Categories: ,

Description

Vifta með 7 stillingum
Reton 7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. Hægt er að nota hana fyrir baðherbergið (6 stillingar) eða til að spara orku með því að flytja varma úr einu rými í annað. Auðvelt er að velja á milli stillinga, aðeins þarf að taka plasthlífina af stilla á þá stillingu sem þú vilt.

Baðvifta
Reton  K7 býður upp á 6 valmöguleika sem hentar fyrir útsog frá heimilum sem eru með náttúrlega loftræsingu. Viftan er sérstaklega gerð til notkunnar í votrýmum (IP44), einsog baðherbergjum og þvottarýmum. Hentar bæði á veggi eða loft.

Rakastýring og viðverustýring
Kemur bæði með rakaskynjara og viðveruskynjara. Þannig skynjar hún rakastig og ef rakinn verður of mikill fer hún sjálfkrafa á meiri blástur (eftir stillingum). Sama á við um hreyfi og ljósskynjarann, þannig að viftan fer á meiri snúning ef einhver kemur inn í herbergið.

Einföld
Þrátt fyrir að vera snjallvifta er hún ótrúlega einföld. Engin öpp eða flóknar stýringar. Bara 1 takki sem hægt er að stilla á allar 7 stillingarnar.

Flutningur á varma
Reton  K7 er með innbyggan hitaskynjara sem stýrir loftflæði t.d. úr rými þar sem hiti er nægur, í herbergi þar sem þörf er fyrir aukinn varma. Viftunni er komið fyrir á vegg eða lofti á milli rýma (þvermál gats er á bilinu (Ø80 – 125 mm).

Bæklingur á íslensku

Helstu eiginleikar:

  • Sjálfvirk rakastýring –  Ef raki eykst, fer vifta sjálfkrafa í gang og loftræsir fljótt og vel.
  • Ljósskynjari – Hægt er að stjórna viftu með hreyfiskynjara eða þegar ljós eru kveikt. Slekkur á sé eftir 15min eftir að ljós eru slökkt eða boð frá hreifiskynjara.
  • Sjálfvirk útloftun – Forðist þungt loft og slæma lykt t.d. Í sumarbústaðnum. Sjálfvirk útloftun
    þrátt fyrir að enginn er á staðnum.
  • Flutningur á varma – Jafnar varmaflæði milli rýma, flytur umfram varma t.d. frá varmadælu eða sólskála í nærliggjandi rými.
  • Sjálfstýring á mótor – Innbyggð hraðastýring sem hámarkar nýtingu mótors og kemur í veg fyrir að það myndist dragsúgur jafnvel þó viftan keyri á lágum hraða.
  • Hljóðlát – Einstaklega hljóðlát. Aðeins um 17 dB á lægsta hraða og 25db á hæsta.
  • Framúrskarandi vifta – Mikil afkastageta og ræður við hátt þrýstifall
  • Þarf litla orku – Orkunotkun Klimat 7 er mest 3 vött

Eiginleikar:

  • Rör: 100 mm
  • Í loft eða á vegg
  • Þvermál: 175 mm
  • Dýpt: 55 mm
  • Afköst:
    • Lág: 40 m³/h (11,1 l/s)
    • Milli: 60 m³/h (16,7 l/s)
    • Hátt: 95 m³/h (26,4 l/s)
    • Max:  110 m³/h (30,6 l/s)
  • Mótþrýstingur: 48 Pa
  • Hljóð 17 dB(A) 3 m
  • Afl:  3W
  • Straumur:  230V AC 50Hz
  • Þéttleiki: IP44 (svæði 1)

Stillingar:
[porto_content_box] Einfalt er að velja – bara snúa einum takka![/porto_content_box]

  1. Alsjálfvirk – þrír hraðar. Lágur hraði. Hreyfiskynjari – meðalhraði. Rakaskynjari – hár hraði
  2. Ef þörf er á aukinni loftræsingu. Lágur hraði. Hreyfiskynjari – meðalhraði. Rakaskynjari – mesti hraði
  3. Án hreyfiskynjara . Lágur hraði. Rakaskynjari – hár hraði.
  4. Sjálfvirk gangsetning. Hreyfiskynjari – meðalhraði. Rakaskynjari – hár hraði. Möguleiki til að koma í veg fyrir dragsúg í gegnum viftu.
  5. Handvirk gangsetning og stopp með rofa. Þegar kveikt er á viftu þá keyrir hún á háum hraða. Möguleiki til að koma í veg fyrir dragsúg í gegnum viftu.
  6. Sjálfvirk útloftun. Eins og stilling nr.4. Ef vifta hefur ekki verið í gangi í meira en 24 tíma, þá er hægt að láta hana fara í gang á 12 tíma fresti og þá keyrir  hún í 30 mín í senn.
  7. Varmaflutningur. Flytur umframvarma á milli rýma, t.d. frá varmadælu yfir í nærliggjandi herbergi.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=EPhyg8bNcQU]

 

 

Bakhlið á viftu: