Varmadreifir

Kíktu í vefverslun

Varmadreifir

SKU: vel-dif Categories: ,

Description

Varmadreifari til að hengja upp í loft til að dreifa og jafna hitastig eða jafna rakasig. Hiti leitar upp, og hitastig er oft ójafnt þar sem mesti hitinn leitar upp undir loft. Á sama tíma þarf að hita upp til að hafa nægjanlega hátt hitastig í lægri hæð.

Varmadreifarinn er notaður til að hræra upp í lofti og jafna hitastig t.d. í iðnaðarhúsnæði, íþróttahúsum, vörugeymsslum, verslunum og útihúsum. Þetta á sérstaklega við um þar sem mikil lofthæð er.

Með þessu er hægt að spara í kyndikostnaði. Mælingar sýna allt að 15°C mun á lægsta og hæsta punkti í háum byggingum. Mikil orka fer því að kynda, varma sem leitar svo allur upp. Því getur varmadreifari jafnað hitastigið og lækkað þörfina fyrir að kynda.

Uppbygginga

  • Hringur með rúnuðum brúm smíðaður úr sterku varanlegu efni
  • Keðjur og brakket til að hengja upp
  • Viftuspaði úr plasti og kjarni úr steyptu áli. Ballanserað samkvæmt staðli UNI ISO 1940
  • Öflugur rafmótir sem er þriggja eða einfasa, hægt að hraðastýra
  • IP 55 raka og rykþéttleiki, sem þýðir að mótor þolir hátt rakastig
  • Þolir hitastig á bilinu -20°C / +50°C.

Aukahlutir:

  • Hraðstýring
  • Hitamælir sem mælir hitastig efst og neðst og setur viftu að stað ef hitamunur verður of mikill

Bæklingur
Tækniupplýsingar